Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður Íslands og leikmaður PSG var ánægður með frammistöðu íslenska liðsins eftir öruggan 39-26 sigur gegn Eistlandi í undankeppni Evrópumótsins 2028 í Tallinn í gær. Bjarki Már átti stórleik í íslenska liðinu og skoraði meðal annars tíu mörk í fyrri hálfleik. Hann ræddi við Handknattleikssamband Evrópu (EHF) eftir leikinn og viðurkenndi að íslenska liðið hefði farið heldur rólega af stað. „Við byrjuðum í raun frekar illa en þegar við fundum taktinn héldum við okkur við leikplanið og allt gekk nákvæmlega eins og við höfðum lagt upp með,“ sagði Bjarki Már í samtali við EHF. Íslenska liðið lauk þar með fyrri tveimur leikjum sínum í undankeppni EM 2028 með tveimur öruggum sigrum, en Ísland hafði áður unnið Úkraínu með 22 marka mun í Laugardalshöll síðastliðinn miðvikudag. Bjarki Már hafði einnig orð á frammistöðu eistneska liðsins og telur að þar sé að finna efnilega leikmenn þótt liðið eigi enn nokkuð í land með að ná þeim bestu. „Eistland er líka með nokkra hæfileikaríka leikmenn. Þeir eiga enn langt í land en allt er mögulegt,“ sagði Bjarki Már að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.