Handknattleiksdeild Gróttu hefur framlengt samning sinn við hinn 18 ára gamla Þröst Blæ Guðmundsson til ársins 2029. Þröstur Blær er uppalinn hjá félaginu og hefur verið að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki karla á yfirstandandi tímabili í Grill66-deildinni. ,,Þröstur Blær er leikstjórnandi að upplagi en getur einnig leikið fleiri stöður á vellinum. Hann hefur verið hluti af æfingahópi meistaraflokks Gróttu á tímabilinu og komið við sögu í átta leikjum með aðalliðinu þar sem hann hefur skorað fimm mörk," segir í tilkynningunni frá félaginu. ,,Þrátt fyrir ungan aldur hefur Þröstur Blær látið að sér kveða í yngri flokkum félagsins. Hann er lykilmaður í 3. flokki karla og ungmennaliði Gróttu sem tekur þátt í 2. deild Íslandsmótsins," segir ennfremur en Þröstur Blær hefur einnig verið viðloðandi yngri landslið Íslands og var meðal annars valinn í æfingahóp U18 ára landsliðsins fyrr á þessu ári. Í tilkynningu félagsins kemur fram að það sé Gróttu mikils virði að halda áfram að byggja upp liðið með leikmönnum sem hafa alist upp hjá félaginu og eigi framtíðina fyrir sér. Þröstur Blær sé klárlega einn þeirra og spennandi verði að fylgjast með framgangi hans á næstu misserum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.