Svíar settu nýtt met
FLH

Sænska karla landsliðið setti nýtt markamet þegar liðið vann ótrúlegan þrjátíu marka útisigur á Lúxemborg, 50–20, í undankeppni Evrópumótsins 2028 í gær. Aldrei áður hafði sænska karlalandsliðið skorað 50 mörk í einum landsleik og bættu Svíar því eigið met með sigrinum.

Fyrra markamet sænska karlalandsliðsins var 49 mörk en Svíar höfðu tvívegis náð þeim markafjölda, gegn Ástralíu árin 1999 og 2005. Þá bættu Svíar einnig eigið markamet í undankeppni Evrópumótsins en fyrra metið var 42 mörk, sem liðið skoraði gegn Tyrklandi árið 2008. Svíar bættu því það met um heil átta mörk með stórsigrinum gegn Lúxemborg.

Lúxemborgarar byrjuðu leikinn ágætlega og komust tvívegis yfir á upphafsmínútunum. Eftir átta mínútna leik var staðan 8–6 fyrir Svíum en þá tóku gestirnir öll völd á vellinum. Svíar skoruðu átján mörk gegn aðeins fjórum mörkum heimamanna það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og leiddu með sextán mörkum í leikhléi, 26–10.

Yfirburðirnir héldu áfram í síðari hálfleik þar sem Svíar skoruðu fjórtán mörk gegn aðeins einu marki Lúxemborgara á einum kafla. Þegar fimmtán mínútur voru eftir var staðan orðin 40–11 og ljóst að sögulegur sigur væri í uppsiglingu.

Svíar slökuðu nokkuð á undir lokin en náðu engu að síður að rjúfa 50 marka múrinn og tryggja sér stærsta markaskor landsliðsins frá upphafi. Ludvig Hallbäck var markahæstur Svía með átta mörk en Emil Mellegård og Axel Månsson skoruðu sex mörk hvor. Alls komust tólf leikmenn Svía á blað.

Markverðir Svía, Simon Möller og Marko Roganović áttu einnig góðan dag og voru báðir með að minnsta kosti 50% markvörslu.

Þetta var annar sigur Svía í undankeppninni en liðið hafði áður unnið Grikkland, 33–24, á heimavelli. Svíar eru því með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar og hafa skorað samtals 83 mörk í leikjunum tveimur.

„Ég er mjög ánægður með úrslitin og það var mikill heiður fyrir mig að fá að vera fyrirliði sænska landsliðsins í dag. Ég er líka ánægður fyrir hönd allra nýju strákanna sem komu inn í liðið og sýndu hvað í þeim býr,“ sagði Felix Möller í samtali við Handknattleikssamband Evrópu (EHF) eftir leikinn.

„Þetta var virkilega góð frammistaða. Allir vildu sanna hversu góðir þeir eru og allir spiluðu frábæran leik. Það skiptir engu máli hvort við séum með okkar hefðbundna lið eða nýju strákana inni á vellinum. Þeir elska allir að spila handbolta,“ sagði Felix Möller að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top