Apelgren hættur hjá Pick Szeged
Dominika Zarzycka / AFP

Svíinn, Michael Apelgren er hættur sem þjálfari ungverska stórliðsins Pick Szeged. Félagið tilkynnti í dag að það hefði komist að samkomulagi við sænska þjálfarann um að rifta samningi hans. Eftirmaður hans verður kynntur á næstunni.

Apelgren tók við liðinu sumarið 2024 og stýrði því í 117 leikjum. Undir hans stjórn varð Szeged ungverskur bikarmeistari vorið 2025 og komst í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar tvö tímabil í röð. Í vetur féll liðið hins vegar úr leik strax í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Apelgren verður áfram við stjórnvölinn hjá sænska karlalandsliðinu sem undirbýr sig fyrir heimsmeistaramótið í janúar.

Ungverska liðið er á toppi ungversku deildarinnar með 21 stig eftir tólf leiki með Veszprém er í 2.sæti deildarinnar með 17 stig eftir einungis níu leiki.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top