Rúnar fagnaði fyrsta heimasigrinum
Florian Wiegand /AFP

Wetzlar, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar vann mikilvægan 33–26 sigur á Göppingen í þýsku Bundesligunni í kvöld. Gummersbach hafði betur gegn Erlangen í Íslendingaslag og Kiel tók toppsætið með öruggum útisigri á Bergischer. 

Wetzlar var tveimur mörkum undir í hálfleik, 14–16, og lenti 18–20 undir snemma í þeim síðari. Þá skoraði lið Rúnars níu mörk gegn tveimur á níu mínútna kafla og breytti stöðunni í 27–22. Niklas Theiß skoraði níu mörk og Bart Ravensbergen átti sterkan leik í markinu. Þetta var fyrsti heimasigur Wetzlar á tímabilinu og sá annar í deildinni. Liðið lyfti sér úr botnsætinu og er nú stigi frá öruggu sæti.

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach unnu Erlangen 28–25 á heimavelli. Jafnt var 23–23 þegar átta mínútur voru eftir en Gummersbach skoraði næstu fjögur mörk. Teitur Örn Einarsson skoraði fjögur mörk og Garðar Ingi Sindrason eitt fyrir Gummersbach, sem situr í fjórða sæti með 20 stig. 

Kiel vann Bergischer 34–26 á útivelli eftir að hafa leitt 13–11 í hálfleik. Svíinn Eric Johansson skoraði tíu mörk fyrir Kiel, sem er með 25 stig á toppnum, einu meira en Magdeburg sem á tvo leiki til góða á Kiel.

Úrslit kvöldsins:

Gummersbach - Erlangen 28-25

Bergischer - Kiel 26-34

HSG Wetzlar - Göppingen 33-26

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top