ÍR vann sinn ellefta sigur í jafnmörgum leikjum í Grill 66-deild karla þegar liðið lagði HK 2 að velli, 39–29, í kvöld. ÍR-ingar eru á toppnum með 22 stig, fjórum stigum á undan Gróttu og Selfossi 2. Grótta á leik til góða. ÍR leiddi 20–15 í hálfleik en HK 2 minnkaði muninn í tvö mörk, 30–28, þegar tæpar níu mínútur voru til leiksloka. Þá lokaði Arnór Freyr Stefánsson markinu á meðan ÍR skoraði átta mörk í röð og breytti stöðunni í 38–28. Bjartur Fritz Bjarnason skoraði síðasta mark leiksins. Jökull Blöndal Björnsson var markahæstur hjá ÍR með níu mörk, Bjartur Fritz skoraði átta og Bernard Kristján Owusu Darkoh sex. Arnór Freyr varði níu skot, þar af fjögur eftir að HK 2 minnkaði muninn í tvö mörk. Elmar Franz Ólafsson var markahæstur hjá HK 2 með fimm mörk. HK 2 er í áttunda sæti með átta stig eftir ellefu leiki.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.