Aganefnd HSÍ hefur gert handknattleiksdeild Vals að greiða 125 þúsund króna sekt vegna vítaverðrar framkomu áhorfanda í garð annars dómara leiks Vals og Aftureldingar í Olís-deild karla sem fram fór á Hlíðarenda þann 31. október síðastliðinn. Stjórn HSÍ hefur jafnframt sent frá sér yfirlýsingu þar sem framkoman er fordæmd. Málinu var vísað til aganefndar HSÍ þann 17. nóvember síðastliðinn. Í erindi sem barst skrifstofu HSÍ var atvikinu lýst með eftirfarandi hætti: „Atvikið átti sér stað í áhorfendastúku meðan á leik stóð og hafði uppi ítrekuð hróp og niðrandi ummæli í garð dómara leiksins. Meðal þeirra orða sem hann er sagður hafa látið falla voru „hommatittur“, „fífl“ og fleiri óviðeigandi og særandi ummæli.“ Handknattleiksdeildum Vals og Aftureldingar var gefinn kostur á að skila inn greinargerðum vegna málsins. Í greinargerðum félaganna kemur fram að viðkomandi sé ekki samningsbundinn félögunum þótt hann hafi komið að starfi þeirra í sjálfboðavinnu. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur aðilinn verið þjálfarateymi Aftureldingar til halds og trausts á þessu tímabili og stjórnað tækniæfingu hjá liði Aftureldingar. Hann hafi hinsvegar verið áhorfandi á leiknum á eigin vegum. Bæði félög harma og fordæma ummælin og hafa gripið til viðeigandi ráðstafana vegna málsins. Í yfirlýsingu áhorfandans til aganefndar gengst hann við því að framkoma hans á leiknum hafi verið óásættanleg og biðst hann afsökunar á henni. Hann kveðst hins vegar ekki muna eftir því að hafa látið falla ummæli sem vísa til kynhneigðar. Þá kemur fram að hann hafi haft persónulega samband við annan dómara leiksins og beðið hann afsökunar. Í gögnum málsins liggur einnig fyrir yfirlýsing starfsmanns við öryggisgæslu á leiknum. Yfirlýsingin er ekki að öllu leyti samhljóða erindi framkvæmdastjóra HSÍ og dómaranefndar hvað ummælin varðar en staðfestir að niðrandi ummæli hafi fallið í garð dómara. Starfsmaðurinn viðurkennir að það hafi verið mistök af sinni hálfu að láta ekki vísa áhorfandanum úr húsinu. Aganefnd telur sannað að áhorfandinn hafi gerst sekur um vítaverða framkomu gagnvart öðrum dómara leiksins. Nefndin hefur hins vegar ekki heimild til þess að beita áhorfandann sjálfan viðurlögum og var Val því gert að greiða 125 þúsund króna sekt sem heimaliði og ábyrgðaraðila á framkvæmd leiksins. Annar dómara leiksins var Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna '78. Athygli vekur að Kári hefur hvorki dæmt leik í Olís-deild karla né kvenna síðan umræddur leikur fór fram í lok október. Ekki liggur fyrir hvort fjarvera hans tengist umræddu atviki. Stjórn HSÍ sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem mikilvægi þess að allir sem koma að handboltanum sýni virðingu í orði og verki er ítrekað. „Niðrandi ummæli, fordómar og mismunun eiga hvergi heima og slík hegðun er aldrei í lagi, hvorki innan íþróttahreyfingarinnar né annars staðar í samfélaginu. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að standa vörð um þau gildi sem íþróttin byggir á og bregðast við þegar farið er yfir mörkin,“ segir meðal annars í yfirlýsingu stjórnar HSÍ. Stjórn HSÍ tekur jafnframt fram að sambandið muni áfram leggja áherslu á að siðareglur þess séu virtar og að handboltinn sé öllum öruggur og aðgengilegur vettvangur þar sem virðing og tillitssemi eru í fyrirrúmi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.