U17 ára kvennalandslið Íslands hefur leik í undankeppni EM gegn Tyrklandi í Þórshöfn í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 21:15 í íþróttahöllinni Við Tjarnir, tæpum fimm klukkustundum síðar en upphaflega stóð til. Leikurinn átti að hefjast klukkan 16:30 en var seinkað vegna flugtafa af völdum veðurs. Tyrkneska liðið og dómarar leiksins lentu í Færeyjum klukkan 02:40 í nótt en áttu upphaflega að koma um hádegisbil í gær. Ísland mætir Færeyjum klukkan 17:00 á laugardag og Ísrael klukkan 14:30 á sunnudag. Tvö efstu liðin í riðlinum tryggja sér sæti á EM. Hægt er að sjá alla leikina á EHFTV. Sextán þjóðir leika í fjórum fjögurra liða riðlum en eitt þriðja sætis lið kemst einnig á EM sem fram fer í Svartfjallalandi næsta sumar. Rakel Dögg Bragadóttir er þjálfari íslenska liðsins og Arnar Daði Arnarsson er aðstoðarþjálfari. Landsliðshópur Íslands Anja Gyða Vilhelmsen – Valur
Bára Ingibjörg Leifsdóttir – Selfoss
Bjartey Hanna Gísladóttir – Fram
Elma Kolbrún Bjarnadóttir – FH
Emilía Guðný Magnúsdóttir – HK
Freydís Ragna Kristjánsdóttir – HK
Glódís Dúna Óðinsdóttir – ÍBV
Helga Jenný Vigfúsdóttir – HK
Hjördís Gauja Kjartansdóttir – Selfoss
Katrín Ásta Jóhannsdóttir – ÍR
Kristín Einarsdóttir – HK
Sara Sigurvinsdóttir – Valur
Sara Sveinsdóttir – Valur
Soffia Helen Sölvadóttir – Grótta
Tinna Dröfn Hauksdóttir – HK
Þórhildur Káradóttir – Valur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.