Frábær sigur Íslands á Svíþjóð í Malmö
Ina FASSBENDER / AFP

Íslenska kvennalandsliðið vann frábæran 29-28 sigur á Svíþjóð í vináttulandsleik þjóðanna í Malmö í kvöld.

Íslenska liðið sýndi virkilega góða frammistöðu gegn sterku liði Svía í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið sem hefst í næstu viku. Thea Imani Sturludóttir átti stórleik, var besti leikmaður vallarsins og skoraði sigurmark Íslands á 59. mínútu. Svíþjóð fékk tvívegis tækifæri til að jafna metin en mistókst að koma skoti á markið í síðustu tveimur sóknum sínum.

Íslenska liðið lék afar vel í fyrri hálfleik, bæði í vörn og sókn, auk þess sem Hafdís Renötudóttir stóð vaktina vel í markinu. Ísland breytti stöðunni úr 4-5 í 7-5 og náði fimm marka forskoti þegar Katrín Anna Ásmundsdóttir kom liðinu í 12-7 á 18. mínútu. Íslenska liðið hélt frumkvæðinu út hálfleikinn og skoraði Thea Imani glæsilegt mark undir lok hans sem tryggði Íslandi fjögurra marka forskot í hálfleik, 16-12.

Sandra Erlingsdóttir kom Íslandi fimm mörkum yfir í upphafi síðari hálfleiks en í kjölfarið skoruðu Svíar fjögur mörk í röð og hleyptu mikilli spennu í leikinn. Svíar jöfnuðu metin í 21-21 á 46. mínútu og komust yfir í fyrsta sinn síðan í upphafi leiks þegar Nina Koppang kom þeim í 24-23 á 49. mínútu.

Íslensku stelpurnar sýndu mikinn karakter á lokakaflanum og létu sænska liðið aldrei ná meira en eins marks forskoti. Elin Hansson kom Svíum í 28-27 á 58. mínútu en þá tók Thea Imani til sinna ráða. Hún jafnaði metin og skoraði síðan sigurmark íslenska liðsins á 59. mínútu. Frábær sigur íslenska liðsins á sterkri handboltaþjóð og góð innspýting fyrir Evrópumótið.

Áhyggjur af Elínu Klöru

Það skyggði þó á sigurinn að Elín Klara Þorkelsdóttir fór meidd af velli í upphafi leiks. Hún haltraði þegar íslensku stelpurnar fögnuðu sigrinum eftir leikinn og er staðan á henni mikið áhyggjuefni með Evrópumótið handan við hornið.

Katrín Tinna Jensdóttir kom ekkert við sögu í leiknum en hún glímir við meiðsli. Alexandra Líf Arnarsdóttir, sem var kölluð inn í landsliðshópinn, fékk hins vegar tækifæri og leysti af Elísu Elíasdóttur sem lék stærstan hluta leiksins á línunni.

Thea Imani var markahæst í íslenska liðinu með átta mörk úr tólf skotum. Sandra Erlingsdóttir skoraði sex mörk úr sjö skotum og Lovísa Thompson fimm mörk úr sjö skotum. Þá var Hafdís Renötudóttir öflug í marki íslenska liðsins með tíu varin skot.

Liðin mætast á nýjan leik í Halmstad á laugardaginn en um verður að ræða síðasta leik íslenska landsliðsins áður en flautað verður til leiks á Evrópumótinu í næstu viku.

Mörk Íslands: Thea Imani Sturludóttir 8, Sandra Erlingsdóttir 6/4, Lovísa Thompson 5, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 3, Katrín Anna Ásmundsdóttir 2, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 2, Elín Klara Þorkelsdóttir 1, Elísa Elíasdóttir 1, Elín Rósa Magnúsdóttir 1.

Varin skot: Hafdís Renötudóttir 10/1 (29%), Sara Sif Helgadóttir 2/1 (40%).

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top