Sjö lið hafa tryggt sér sæti í næstu umferð Evrópudeildarinnar
Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP

Að loknum fimm umferðum í riðlakeppni Evrópudeildar karla hafa sjö lið tryggt sér sæti í næstu umferð keppninnar. Þar á meðal er svissneska liðið Kadetten Schaffhausen, sem íslenski landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson leikur með.

Kadetten Schaffhausen trónir á toppi C-riðils með níu stig af tíu mögulegum. Óðinn Þór Ríkharðsson, markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar á tímabilinu, hefur farið mikinn í keppninni.

Króatíska liðið HC Izvidac hefur einnig tryggt sér sæti í næstu umferð úr C-riðli eftir 33–26 heimasigur á CSM Búkarest í fimmtu umferðinni.

Flensburg og spænska liðið Granollers hafa bæði tryggt sér áframhaldandi þátttöku úr E-riðli. Flensburg hefur unnið alla fimm leiki sína í keppninni en liðin mætast í lokaumferð riðlakeppninnar.

Spænska liðið Torrelavega tryggði sér sæti í næstu umferð með 31–27 sigri á danska liðinu Holstebro og situr á toppi F-riðils með átta stig.

Slóvenska liðið Slovan Ljubljana, undir stjórn Uros Zorman, hefur líkt og Flensburg unnið alla fimm leiki sína í keppninni og trónir á toppi H-riðils með fullt hús stiga.

Sænska liðið Sävehof tryggði sér sæti í næstu umferð á þriðjudagskvöld með sannfærandi 31–22 sigri á Bergischer HC. Sävehof situr á toppi D-riðils með átta stig.

Bergischer HC á enn möguleika á að komast áfram en liðið mætir Tatran Presov í lokaumferð riðlakeppninnar sem fer fram þriðjudaginn 1. desember.

Liðin sjö sem hafa tryggt sér sæti í næstu umferð:

  • SG Flensburg-Handewitt (Þýskaland)
  • BM Granollers (Spánn)
  • Kadetten Schaffhausen (Sviss)
  • Bathco BM Torrelavega (Spánn)
  • Slovan Ljubljana (Slóvenía)
  • HC Izvidac (Króatía)
  • IK Sävehof (Svíþjóð)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top