Stelpurnar okkar leika með sorgarbönd í Malmö
HSÍ

Íslenska og sænska kvennalandsliðið munu leika með sorgarbönd þegar liðin mætast í vináttulandsleik í Malmö í kvöld. Með því verður minnst skipverjanna þriggja sem fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk um sextíu sjómílur austur af landinu í gær. Fjórtán skipverjum var bjargað.

Handknattleikssamband Íslands og Körfuknattleikssamband Íslands hafa komið sér saman um að landslið beggja sambanda leiki með sorgarbönd í leikjum sínum í kvöld. Karlalandslið Íslands í körfuknattleik mætir Bosníu í Laugardalshöll þar sem hinna látnu verður einnig minnst með mínútu þögn fyrir leik.

Sænska handknattleikssambandið hefur sömuleiðis ákveðið að leikmenn sænska landsliðsins beri sorgarbönd í leiknum gegn Íslandi til minningar um skipverjana sem fórust.

„Handknattleikssamband Íslands sendir fjölskyldum, aðstandendum, áhöfn og samfélaginu öllu innilegar samúðarkveðjur,“ segir í tilkynningu frá HSÍ.

Viðureign Íslands og Svíþjóðar hefst klukkan 17:15 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á RÚV 2.

Handkastið sendir fjölskyldum og aðstandendum hinna látnu, áhöfninni og öllum þeim sem eiga um sárt að binda innilegar samúðarkveðjur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top