Dagur Árni með ellefu mörk í stórsigri KA
Egill Bjarni Friðjónsson)

KA vann sannfærandi ellefu marka sigur á HK, 36-25, þegar liðin mættust á Akureyri í Olís-deild karla í kvöld. Heimamenn tóku frumkvæðið snemma leiks, leiddu með sex mörkum í hálfleik og gáfu gestunum aldrei færi á að hleypa spennu í leikinn á ný.

HK skoraði fyrsta mark leiksins en KA svaraði með sex mörkum í röð og komst í 6-1 eftir tæplega átta mínútna leik. Ágúst Elí Björgvinsson fór vel af stað í marki heimamanna á meðan Dagur Árni Heimisson var atkvæðamikill í sóknarleiknum.

KA hélt áfram að hafa undirtökin og komst í 11-5 áður en 13 mínútur voru liðnar af leiknum. Munurinn var orðinn sjö mörk í stöðunni 16-9 en HK náði að minnka hann í 17-13. Heimamenn leiddu með sex mörkum þegar gengið var til búningsklefa, 20-14.

Munurinn sveiflaðist á milli fjögurra og sex marka lengst af í síðari hálfleik. HK minnkaði muninn í 28-24 þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af leiknum og tóku KA-menn í kjölfarið leikhlé.

Heimamenn svöruðu með frábærum kafla þar sem þeir skoruðu sex mörk í röð og breyttu stöðunni í 34-24. Þar með var öll von gestanna um endurkomu úr sögunni og KA fagnaði að lokum ellefu marka sigri, 36-25.

Dagur Árni Heimisson átti stórleik fyrir KA og skoraði ellefu mörk. Andri Freyr Friðriksson skoraði sex mörk og þeir Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Dagur Gautason fimm hvor. Ágúst Elí Björgvinsson átti sömuleiðis frábæran leik í marki KA og varði 19 skot.

Hjá HK voru þeir Alex Máni Oddnýjarson og Kári Tómas Hauksson markahæstir með sjö mörk hvor. Brynjar Vignir Sigurjónsson varði 12 skot og Patrekur Guðni Þorbergsson tvö.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top