Fimm bestu markverðirnir á EM kvenna
Liselotte Sabroe / Ritzau Scanpix / AFP

Evrópumót kvenna í handbolta er á næsta leiti og hefur handboltamiðillinn GoHandball tekið saman lista yfir fimm bestu leikmennina í hverri leikstöðu fyrir mótið. Að þessu sinni er sjónum beint að markvörðunum.

Markverðir frá fimm þjóðum komast á listann en athygli vekur að tveir þeirra eru samherjar hjá danska stórliðinu Team Esbjerg.

Johanna Bundsen – Svíþjóð

Er Johanna Bundsen mikilvægasti leikmaður sænska landsliðsins? Það má færa sterk rök fyrir því.

Bundsen hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn besti markvörður heims. Sænska landsliðið stendur nú á tímamótum og verður reynsla hennar og leiðtogahæfileikar því mikilvægari en nokkru sinni fyrr.

Svíþjóð er ekki á meðal þeirra þjóða sem eru taldar líklegastar til að vinna Evrópumeistaratitilinn en ætli sænska liðið sér langt á mótinu þarf Bundsen að sýna sitt besta.

Anna Kristensen – Danmörk

Það er fátt sem hægt er að gagnrýna í leik Önnu Kristensen. Danski markvörðurinn sýnir stöðugleika í sínum leik og hefur einstakan hæfileika til að verja mikilvæg skot þegar mikið liggur við.

GoHandball segir það nánast ósanngjarnt að Danir hafi einnig hinn reynslumikla markvörð Söndru Toft innan sinna raða. Saman mynda þær eitt sterkasta markvarðapar Evrópumótsins.

Katharina Filter – Þýskaland

Katharina Filter hefur sýnt fram á gæði sín á hæsta stigi, bæði með þýska landsliðinu og Team Esbjerg.

Hjá danska félaginu deilir hún markvarðarstöðunni með norsku landsliðskonunni Silje Solberg-Østhassel, sem einnig er á listanum.

Filter er markvörður sem getur unnið leiki fyrir sitt lið og ætli Þjóðverjar sér að berjast um Evrópumeistaratitilinn þurfa þeir á hennar bestu frammistöðu að halda.

Silje Solberg-Østhassel – Noregur

Það er svo sannarlega ekki skortur á reynslu hjá Silje Solberg-Østhassel. Norski markvörðurinn hefur unnið fjölmarga stóra titla með landsliðinu og heldur áfram að sýna sterka frammistöðu með Team Esbjerg, bæði í dönsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu.

Miklar væntingar eru gerðar til norska landsliðsins á enn einu stórmótinu og fáir leikmenn vita betur en Solberg-Østhassel hvað þarf til að standa undir þeim.

Hatadou Sako – Frakkland

Þegar Hatadou Sako er upp á sitt besta getur reynst afar erfitt að koma boltanum fram hjá henni.

Franski markvörðurinn hefur sýnt gæði sín í Meistaradeild Evrópu undanfarin ár og er fær um að eiga stórkostlega leiki. Þótt frammistaða hennar geti stundum verið sveiflukennd er enginn vafi á hæfileikum hennar.

Ásamt hinni reynslumiklu Lauru Glauser eiga Frakkar tvo framúrskarandi valkosti í markvarðarstöðunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top