GOG einn óþægilegasti mótherji sem Barca hefur fengið í heimsókn
Robert Wengler /AFP

Carlos Ortega, þjálfari spænska stórliðsins Barcelona, hrósaði danska liðinu GOG í hástert eftir sjö marka sigur sinna manna, 35-28, í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Ortega segir danska liðið vera einn óþægilegasta mótherjann sem Barcelona hefur fengið í heimsókn í Palau Blaugrana.

Þrátt fyrir sannfærandi sigur ríkjandi Evrópumeistara á danska liðinu þurftu lærisveinar Ortega að hafa töluvert fyrir stigunum tveimur. Barcelona var aðeins einu marki yfir í hálfleik og það var ekki fyrr en á síðasta stundarfjórðungi leiksins sem spænska stórliðið náði að slíta sig frá gestunum.

Ákveðinn og líkamlega sterkur varnarleikur GOG olli leikmönnum Barcelona miklum vandræðum stóran hluta leiksins. Ortega fór fögrum orðum um danska liðið í samtali við heimasíðu Handknattleikssambands Evrópu eftir leikinn.

„Þeir eru án nokkurs vafa einn óþægilegasti mótherjinn sem við höfum fengið í heimsókn í Palau. Þeir eru mjög stórir í vörninni og einstaklega aggressífir. Þeir veittu okkur svo sannarlega verðuga mótspyrnu og ég get ekki sagt að við höfum spilað illa á neinum tímapunkti í leiknum,“ sagði Ortega.

Spænski þjálfarinn var því einkar sáttur við að hans menn skyldu hafa náð að knýja fram sigur að lokum.

„Okkar skylda er að komast í gegnum þessa leiki og það tókst okkur í dag. Þetta voru mikilvæg stig með tilliti til næstu vikna,“ sagði Ortega.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top