Hollenski landsliðsmarkvörðurinn hefur fundið sér nýtt lið
Iris van den Broek/AFP

Franska stórliðið Brest hefur enn á ný látið til sín taka á leikmannamarkaðnum en félagið staðfesti í gær komu hollenska landsliðsmarkvarðarins Yara ten Holte frá danska stórliðinu Odense. Hin 26 ára gamla landsliðskona hefur skrifað undir tveggja ára samning við Brest sem tekur gildi næsta sumar.

Ten Holte hefur verið á mála hjá Odense frá því í desember árið 2022 en þar áður lék hún með Borussia Dortmund í Þýskalandi. Hún varð þýskur meistari með Dortmund árið 2021 og danskur meistari með Odense árið 2025, sama ár og danska stórliðið komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Ten Holte lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Holland í október árið 2020 og er í dag fyrirliði hollenska landsliðsins.

Hollenski markvörðurinn segir í tilkynningu á heimasíðu Brest að félagaskiptin séu rétt skref fyrir sig á þessum tímapunkti ferilsins. Hún hlakkar til að kynnast nýju landi, nýrri menningu og takast á við nýjar áskoranir í Frakklandi.

Cléopatre Darleux, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Frakklands, hrósar eiginleikum Ten Holte og segir hana kraftmikinn og vinnusaman markvörð sem eigi enn töluvert inni.

Tomáš Hlavatý, þjálfari Brest, bindur miklar vonir við komu hollenska landsliðsmarkvarðarins. Hann telur leiðtogahæfileika hennar og reynslu úr alþjóðlegum handbolta eiga eftir að nýtast félaginu vel, bæði innan vallar sem utan.

Franska stórliðið er að setja saman gríðarlega öflugan leikmannahóp fyrir næsta tímabil en norska stórstjarnan Henny Reistad og franska landsliðskonan Chloé Valentini eru einnig á leið til félagsins næsta sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top