Ómar Ingi útilokar ekki endurkomu fyrir jól
Sævar Jónasson

Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður og leikmaður þýska stórliðsins Magdeburg, verður frá keppni næstu vikurnar vegna tognunar aftan í vinstra læri. Óvíst er hvort hann leiki meira með þýska liðinu fyrir áramót en hann vonast þó til þess að geta snúið aftur á keppnisvöllinn fyrir jól.

„Þetta eru smá meiðsli en þetta hefði getað verið verra,“ sagði Ómar Ingi í samtali við Valtý Björn Valtýsson í útvarpsþættinum Mín skoðun en meiðslin urðu í leik Magdeburg gegn danska liðinu GOG í Meistaradeild Evrópu.

Ómar Ingi var spurður að því hvort hann myndi ekkert leika meira á þessu ári en samkvæmt honum er gert ráð fyrir að bataferlið taki fjórar til sex vikur.

„Það á eftir að koma í ljós. Þetta getur tekið styttri tíma en ég þarf að taka þetta viku fyrir viku. Það er talað um fjórar til sex vikur með þessi meiðsli en það getur verið fyrr. Ég tek stöðuna í hverri viku og síðan spilar maður þegar maður verður klár.“

Síðasti leikur Magdeburg fyrir jól fer fram 22. desember og því er ekki útilokað að íslenski landsliðsmaðurinn nái að koma við sögu fyrir jólafríið.

„Það er spurning hvort ég spili einhvern leik í deildinni fyrir jól en það á eftir að koma í ljós.“

Ómar Ingi glímdi við meiðsli á hægri fæti fyrr á tímabilinu en að þessu sinni er um að ræða meiðsli á þeim vinstri. Fram undan er hvíld hjá skyttunni áður en hann hefur æfingar á nýjan leik.

„Ég þarf bara að taka pásu núna og síðan fer ég í léttar æfingar og síðan byggjum við þetta upp hægt og rólega,“ sagði Ómar Ingi.

Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála hjá Ómari Inga á næstu vikum, ekki síst með hliðsjón af heimsmeistaramótinu sem fram fer í janúar. Ómar Ingi er einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins og því mikilvægt fyrir íslenska liðið að hann verði búinn að ná sér að fullu þegar kemur að mótinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top