Tekur sér frí vegna barneigna
Ina FASSBENDER / AFP)

Ein fremsta handboltakona Afríku, Albertina Kassoma á von á sínu öðru barni og hefur því tekið sér tímabundið hlé frá handbolta. Hin þrítuga Kassoma er fyrirliði landsliðs Angóla og hefur verið í lykilhlutverki hjá rúmenska stórliðinu Rapid Búkarest undanfarin ár.

Kassoma eignaðist sitt fyrsta barn árið 2022 og sneri í kjölfarið aftur á handboltavöllinn þar sem hún skipaði sér á ný í hóp fremstu línumanna heims.

Kassoma á að baki afar glæsilegan landsliðsferil en hún tók þátt á sínu fyrsta heimsmeistaramóti árið 2013, aðeins 17 ára gömul. Hún hefur tekið þátt á sex heimsmeistaramótum og þrennum Ólympíuleikum með landsliði Angóla. Þá var hún kjörin besti leikmaður Afríkumótsins árið 2018.

Rapid Búkarest hefur þegar brugðist við fjarveru Kassoma með því að semja við hinn 24 ára gamla hollenska línumann Pipy Wolfs sem kemur frá ungverska félaginu Mosonmagyaróvár.

Kassoma verður heldur ekki með landsliði Angóla á Afríkumótinu sem fram fer í Túnis dagana 2. til 12. desember. Angóla freistar þess að vinna sinn sautjánda Afríkumeistaratitil á mótinu.

Forráðamenn Rapid hafa lýst yfir fullum stuðningi við Kassoma og hlakka til að fá hana aftur inn í leikmannahópinn að barneignum loknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top