Telur Hauka þurfa að eiga algjöran stjörnuleik í Slóveníu
Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar unnu eins marks sigur á slóvenska liðinu RK Slovenj Gradec, 28–27, í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Evrópubikars karla um helgina.  Rætt var um sigurinn í nýjasta þætti Handkastsins en liðin mætast öðru sinni í Slóveníu annað kvöld.

,,Haukarnir lentu heldur betur í kröppum dansi gegn RK Slovan Gradec. Haukar voru fjórum mörkum undir í hálfleik en Össur Haraldsson skoraði sigurmarkið þegar ein og hálf mínúta var eftir og Haukar fara út til Slóveníu með eins marks forystu,” sagði Stymmi klippari.

,,Ég held að þetta dugi ekki, því miður. Þeir þurfa að eiga algjöran stjörnuleik úti til að klára þá,” sagði Kristinn Björgúlfsson.

,,Ég held að þetta séu vonbrigði fyrir Gunnar Magnússon og félaga að fara ekki með stærra forskot.  Þetta er leiðinlegt og ég held að þeir hafi verið stórhuga fyrir þennan leik, en ég ætla ekki að afskrifa þá. Maður veit ekki hvernig Haukaliðið með fullt af sjálfstrausti mætir til Slóveníu en þeir hefðu þurft að vinna þennan leik aðeins stærra til að vera meira með kassann úti í Slóveníu. Það er eitthvað við Haukaliðið, sjálfstraustið er í botni, hver veit? En maður er ekki svo djarfur að spá þeim sigri í Slóveníu,” sagði Einar Ingi Hrafnsson en Haukar eru á toppi Olís-deildarinnar með fullt hús stiga eftir ellefu leiki.

Liðin mætast öðru sinni á laugardaginn klukkan 18:00 og þá kemur í ljós hvort liðið fer áfram í 16-liða úrslit Evrópubikarsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top