Díana Dögg Magnúsdóttir ((Beate Oma Dahle / NTB / AFP) / Norway OUT / NORWAY OUT
Handkastið fylgist með handboltafréttum hvaðan nær úr heiminum. Hér birtast lifandi erlendar fréttir allan daginn auk þess sem stærri fréttir birtast sem sérfrétt á forsíðu Handkastsins. Fylgstu með því sem er að gerast í handboltaheiminum erlendis hér á Handkastinu og þá sérstaklega Íslendingarnir okkar erlendis. Skara komst áfram í undanúrslit sænska bikarsins kvenna megin þegar liðið vann góðan fimm marka sigur á Sävehof en fyrri leikur liðanna lauk með jafntefli. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sjö mörk fyrir gestina en því miður dugði það ekki til. Aldís Ásta Heimisdóttir og Lena Margrét Valdimarsdóttir komust ekki á blað fyrir heimakonur. Berta Rut Harðardóttir skoraði eitt mark í níu marka sigri Kristianstad á Ystads í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum sænska bikarsins. Ystads vann fyrri leikinn með einu marki svo Berta Rut er komin áfram í undanúrslit. Íslendingaliðið Blomberg-Lippe vann Göppingen á útivelli í kvöld 33-23, eftir að hafa aðeins verið tveimur mörkum yfir í hálfleik. Þetta var sjöundi sigur liðsins í röð sem er á toppi deildarinnar. Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði fjögur mörk. Andrea Jacobsen skoraði tvö mörk og Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði eitt.Erlendar fréttir: Sunnudaginn 2.nóvember:
16:45: Skara sló út Sävehof í Íslendingaslag
Erlendar fréttir: Laugardaginn 1.nóvember:
21:15: Berta Rut skoraði eitt mark
21:00: Sigur hjá Íslendingunum í Blomberg-Lippe

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.