Hannes Höskuldsson (Sigurður Ástgeirsson)
Hannes Höskuldsson, hornamaður Selfyssinga, átti góðan leik og skoraði 12 mörk þegar Selfoss mátti þola tap gegn Val á heimavelli í kvöld. Lokatölur urðu 43-40, Val í vil. Hannes var eðlilega svekktur með tapið en var þó ánægður með þau batamerki sem liðið hefur sýnt milli leikja en Selfoss tapaði stórt gegn Fram í seinustu umferð. Allt viðtalið við Hannes má sjá í spilaranum hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.