FH komst ekki nálægt Limoges
J.L.Long

FH tapaði stórt fyrir franska liðinu Limoges Handball í annarri umferð riðlakeppni Evrópudeildar karla í kvöld. Leikið var í Kaplakrika og lauk leiknum með 13 marka sigri gestanna, 33-46.

FH byrjaði leikinn ágætlega en Limoges tók fljótlega yfir. Franska liðið leiddi með ellefu mörkum í hálfleik, 16-27.

Heimamenn náðu að halda í við gestina að einhverju leyti í síðari hálfleik en náðu aldrei að minnka muninn að ráði. Limoges hélt öruggri forystu allt til leiksloka og vann að lokum 46-33.

Jón Bjarni Ólafsson var markahæstur FH-inga með átta mörk. Símon Michael Guðjónsson skoraði sex mörk og Leonharð Þorgeir Harðarson, Einar Rafn Eiðsson og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu þrjú mörk hver.

Hjá Limoges var Piotr Mielczarski markahæstur með sjö mörk. Maxime Ogando skoraði sex og Théo Clarac bætti við fimm mörkum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top