Nora Mørk flutt á sjúkrahús eftir árekstur við dómara
AFP

Norska handknattleikskonan Nora Mørk, leikmaður danska stórliðsins Team Esbjerg, var flutt á sjúkrahús eftir að hafa meiðst í sigurleik liðsins gegn Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Samkvæmt danska miðlinum TV 2 Sport lenti Mørk í árekstri við dómara þegar hún var á leið af leikvellinum í leikmannaskiptingu.

Mørk er talin hafa meiðst á ökkla í árekstrinum og þurfti hún aðstoð við að komast af leikvellinum.

Danski staðarmiðillinn MigogEsbjerg greinir frá því að Mørk hafi í kjölfarið verið flutt á sjúkrahús þar sem hún gekkst undir röntgenrannsókn.

Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðslin eru eða hvort norska stórstjarnan verði frá keppni um einhvern tíma.

Team Esbjerg hefur enn ekki tjáð sig um meiðslin þrátt fyrir fyrirspurnir TV 2 Sport.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top