Björgvin Páll Gústavsson (Kristinn Steinn Traustason)
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands tilkynnir 18 manna lokahóp sinn á fimmtudaginn fyrir Evrópumótið sem hefst um miðjan janúar. Nokkrar vangaveltur eru meðal gárunga um það hvernig lokahópurinn mun líta út. Meðal annars er markvarðarstaðan hvort Snorri Steinn velji þrjá markmenn í lokahópinn líkt og hann gerði í síðasta landsliðsglugga. Einar Ingi Hrafnsson og Ásgeir Jónsson voru gestir í nýjasta þætti Handkastsins og þar voru málin rædd. ,,Mér finnst líklegt að hann taki þrjá markmenn núna. Bæði útaf því að Einar Baldvin hefur staðið sig frábærlega og ég held að Snorri vilji skoða hann í undirbúningnum. Hvort hann fari síðan með á mótið, þá held ég að Einar Baldvin verði í æfingahópnum fyrstu vikur," sagði Einar Ingi Hrafnsson og hélt áfram: ,,Þú segir að hann velji bara 18 leikmenn, það verður að koma í ljós. Eins með Sigvalda þá held ég að hann verði í þessum hóp til að byrja með út frá því að vera með tvo hægri hornamenn en Snorri hefur alveg nefnt að Teitur geti spilað hægra hornið. Það eru einhverjir vinklar sem gætu komið á óvart en heilt yfir held ég að þetta verði allt frekar eftir bókinni.” Hægt er að hlusta á umræðuna í nýjasta þætti Handkastsins hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.