Grótta með sigur á Nesinu – Halda HK á tánum í toppbaráttunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í kvöld mættust Grótta og Fjölnir á Nesinu í Grill 66 deild kvenna.

Gróttu stelpur voru fyrir leik í harðri baráttu við HK um toppsætið sem gefur beint sæti í Olís deildinni. Fjölnis stelpur hafa verið í framför en eru aðeins stigi frá botnsætinu.

Grótta byrjaði mun betur og eftir korter var staðan 7-4. Í hálfleik var svo staðan 14-9.

Í seinni hálfleik náði Grótta mest 7 marka forskoti og var þetta aldrei í hættu hjá þeim. Fór það svo að lokum að Grótta vann með 7 mörkum. 27-20 urðu lokatölur og ljóst að Grótta eru ekki búnar að gefast upp að fara beint upp í Olís deildina.

Hjá Gróttu voru markmennirnir með samtals 21 bolta varða. Karlotta Kjerúlf skoraði 6 mörk.

Hjá Fjölni var Sara Kristín Pedersen með 5 mörk. Markvarslan hjá þeim skilaði bara 3 boltum vörðum.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top