Benedikt Gunnar Óskarsson (Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP)
Benedikt Gunnar Óskarsson verður frá keppni næstu vikurnar. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið. Hann verður því ekki í leikmannahópi Kolstad í dag er liðið heimsækir Sandefjord í 20.umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Kolstad er í 2.sæti deildarinnar, sex stigum á eftir Elverum sem er á toppi deildarinnar. Sandefjord er í 7.sæti deildarinnar með 18 stig, ellefu stigum á eftir Kolstad. Benedikt Gunnar meiddist í leik með Kolstad gegn Arendal í norsku úrvalsdeildinni um síðustu helgi þar sem Arendal vann óvæntan eins marks sigur í Þrándheimi 30-31. Þar meiddist Benedikt Gunnar á rist í þann mund sem hann skoraði eina mark sitt í leiknum. Benedikt sagði í samtali við Handkastið að hann væri með rifu í vöðva fremst á ristinni en slapp við brot. Hann gerir ráð fyrir að vera frá keppni í 3-4 vikur. Gera má ráð fyrir því að Benedikt missi því af næstu leikjum Kolstad bæði í norsku úrvalsdeildinni og í Meistaradeildinni en Kolstad eiga þrjá leiki eftir í Meistaradeild Evrópu á þessu tímabili og ólíklegt að Benedikt geti spilað í þeim leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.