Goðsögn meðal áhorfenda á Ásvöllum í gær
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Þrefaldur Evrópumeistari og heimsmeistari með sænska landsliðinu á sínum tíma, leikstjórnandinn fyrrverandi og núverandi íþróttastjóri þýska úrvalsdeildarfélagsins, Flensburg, Ljubomir Vrjanes var meðal áhorfenda á Ásvöllum í gærkvöldi þegar undanúrslitin Powerade-bikarsins.

Vrjanes er í fríi á Íslandi þessa dagana en í fyrradag var hann meðal annars mættur á æfingu hjá 4.flokki karla hjá Selfossi. 

Vrjanes sat í stúkunni ásamt Arnari Frey Theodórssyni, umboðsmanni Íslands og gott betur en það, en Arnar Freyr er meðal annars umboðsmaður Snorra Steins Guðjónssonar þjálfara íslenska landsliðsins og er þessa dagana í samningaviðræðum við HSÍ um framlengingu á nýjum samningi Snorra við HSÍ.

Vrjanes þjálfaði Flensburg í sjö ár eftir að leikmannaferlinum lauk en hann hefur ekkert þjálfað undanfarin ár. Hann þjálfaði meðal annars ungverska landsliðið, það serbneska og landslið Slóveníu. Þá þjálfaði hann Rhein-Neckar Löwen í skamman tíma, Kristianstad, Nimes auk Veszprém en hvergi náði hann festu með þessi félög.

Á ferlinum lék hann rúmlega 160 landsleiki fyrir sænska landsliðið og skoraði í kringum 450 mörk. Hann varð heimsmeistari á HM 1999 og vann gullverðlaun á Evrópumótinu 1998, 2000 og 2002. Auk þriggja silfurverðlauna meðal annars á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.

Það mætti því segja að handboltagoðsögn hafi verið meðal áhorfenda á Ásvöllum í gærkvöldi.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top