Leikstjórnandinn, Anna Petrovics sem gekk í raðir nýliða KA/Þórs í Olís-deild kvenna fyrir tímabilið hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Hún hefur yfirgefið félagið og hefur gengið í raðir síns fyrrum félags í Austurríki, Roomz ZV Handball Wiener Neustadt. Anna Petrovics sem er fædd árið 2002 og kemur frá Ungverjalandi var í litlu hlutverki með KA/Þór í vetur en hún var í leikmannahópi KA/Þórs í 17 leikjum í Olís-deildinni og skoraði 10 mörk. KA/Þór hefur tryggt sér sæti sitt í deildinni þrátt fyrir að þrjár umferðir eru eftir af deildinni en liðið er í 6.sæti Olís-deildarinnar með 15 stig, tíu stigum meira en Stjarnan sem er í 7.sætinu. KA/Þór er tveimur stigum á eftir Fram sem er með 17 stig. Fram og KA/Þór mætast í lokaumferðinni en liðin hafa skipt sigrunum á milli sín í innbyrðisleikjum tímabilsins og því gæti þetta orðið úrslitaleikur í lokaumferðinni um það hvort lið endar ofar í töflunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.