Dagur glímir við tognun
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dagur Arnarsson leikmaður ÍBV var ekki í leikmannahópi liðsins í sigrinum gegn Fram í 21.umferð Olís-deildar karla í gær.

Dagur er að glíma við meiðsli en hann kom ekkert við sögu í sigri ÍBV gegn ÍR í umferðinni á undan þrátt fyrir að hafa verið í hópnum í þeim leik. Síðasta umferðin í Olís-deild karla fer fram á fimmtudagskvöldið. Þar fær ÍBV topplið Vals í heimsókn sem gætu tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Eyjum.

,,Ég er að glíma við tognun aftan í læri. Við erum að meta stöðuna dag frá degi. Stefnan er að vera orðinn 100% klár í úrslitakeppninni og því eru engir sénsar teknir. Við verðum að sjá hvernig ég verð á æfingu á morgun varðandi leikinn á fimmtudaginn," sagði Dagur í samtali við Handkastið aðspurður hvort hann gerði ráð fyrir því að vera með í lokaleik íBV í Olís-deildinni á þessu tímabili.

ÍBV hefur unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum í Olís-deildinni og eru í 4.sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Þeir mega hinsvegar ekkert misstíga sig því bæði KA og Afturelding eru að anda ofan í hálsmálið á þeim í næstu sætum fyrir neðan þá.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top