ÍR fylgir Haukum sem skugginn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Lokaleikur í 19.umferð Olís deildar karla fór fram í Skógarselinu í dag þegar ÍR tók á móti KA/Þór.

ÍR er í mikilli baráttu við Haukum um að ná þriðja sætinu í deildinni og þurftu því nauðsynlega á sigri að halda í dag eftir að Haukar unnu ÍBV í fyrsta leik dagsins.

Það var mikið jafnræði með liðunum í upphafi leiks en voru KA/Þór þó alltaf skrefinu á undan. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður náðu heimakonur í ÍR yfirhöndinni og voru á tímabili komnar fimm mörkum yfir. Staðan í hálfleik var, 17-13 ÍR í vil.

ÍR byrjaði síðari hálfleikinn betur og voru komnar með sex marka forskot en KA/Þór náði að klóra í bakkann aftur og voru búnar að minnka muninn í tvö mörk, 21-19 þegar 10 mínútur voru búnar.

Mikið jafnræði var með liðunum allt til leiksloka en náðu KA/Þór aldrei að jafna leikinn og unnu ÍR að lokum fjögurra marka sigur, 32-28.

Sara Dögg Hjaltadóttir var markahæst í liði ÍR með 12 mörkum en hjá KA/Þór var Sólveig Lára Kristjánsdóttir markahæst með 6 mörk.

ÍR heldur því áfram að elta Haukana eins og skugginn í baráttunni um 3.sætið í deildinni.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top