Landsliðskonan, Dana Björg Guðmundsdóttir leikmaður Volda í norsku 1.deildinni gæti verið búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Volda en hún gengur í raðir úrvalsdeildarliðsins, Larvik í sumar. Dana Björg meiddist í leik með Volda í gær en það er handbolti.is sem greinir frá. ,,Útlit er fyrir að hún leiki ekki fleiri leiki á keppnistímabilinu með liðinu. Þar með verður hún ekki með íslenska landsliðinu í síðustu tveimur leikjum undankeppni EM, gegn Færeyingum í Þórshöfn 8. apríl og í heimaleiknum við Portúgal fjórum dögum síðar," segir í frétt Handbolta.is. Eftir því sem handbolti.is kemst næst slitnaði liðband í ökkla Dönu Bjargar snemma leiks Volda og Glassverket í gær. Volda vann leikinn sannfærandi með tíu marka mun 33-23 en Dana Björg skoraði þrjú mörk í leiknum. Um væri að ræða slæm tíðindi fyrir íslenska landsliðið fyrir síðustu leiki þess í undankeppni Evrópumótsins sem fara fram í apríl.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.