KA/Þór tók á móti Val í 21.umferð Olís deildar kvenna á Akureyri í kvöld. Valskonur tryggðu sér Deildarmeistaratitilinn í síðustu umferð og mættu því afslappaðar norður í kvöld. Þær léku ennþá án sinna lykilmanna sem kom þó ekki að sök í síðasta leik. KA/Þór hafði frumkvæðið í fyrri hálfleik og var Susanne Denise Pettersen allt í öllu hjá þeim en hún skoraði 5 mörk í fyrri hálfleik þar sem heimakonur leiddu með einu marki í hálfleik, 14-13. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik þar sem KA/Þór hélt áfram að hafa undirtökin en Valskonur voru þó aldrei langt undan. Valskonur sýndu þó úr hverju þær eru gerðar og náðu að snúa leiknum sér í vil undir lok leiksins og tryggja sér eins marks sigur, 31-30. Það var Arna Karitas sem tryggði Valskonum sigurinn þegar 1 mínúta var eftir. Susanne Denise Pettersen náði ekki að fylgja eftir frábærum fyrri hálfleik en endaði þó markahæst í liði KA/Þór í kvöld og skoraði 7 mörk. Hjá Val var Auður Ester Gestsdóttir markahæst með 8 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.