Ljóst hvar Ísland leikur í riðlakeppni HM 2027
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sex þjóðir sem hafa tryggt sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári hafa verið sett í styrkleikaflokka og vita nú í hvaða riðli þau verða og í hvaða þýsku borg þau munu keppa.

Ísland er meðal þeirra þjóða en nú er ljóst að Ísland leikur í riðlakeppninni í H-riðli sem fram fer í Magdeburg. Portúgal mun einnig leika í Magdeburg en í F-riðli en tveir riðlar verða leiknir í Magdeburg.

Riðlarnir átta á heimsmeistaramótinu fara fram í fjórum borgum, Kiel, Magdeburg, Stuttgart og München en höllin í Kiel tekur fæsta áhorfendur eða 6.200. Höllin í Magdeburg, GETEC Arena er ekki mikið stærri en hún tekur 6.500 áhorfendur.

Milliriðlarnir fara síðan fram í Hannover og Köln þar sem úrslitahelgi fer síðan fram. Forsetabikarinn verður leikinn í Magdeburg.

Dregið verður í riðla 10. júní næstkomandi.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top