Facebook síðan Handballtransfer greinir frá því að Mikkel Hansen taki við sem aðstoðarlandsliðsþjálfari danska landsliðsins af Henrik Kronborg sem er hættur sem aðstoðarþjálfari danska landsliðsins. Handkastið hefur greint frá því að Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands sé á blaði hjá danska landsliðinu og sé í viðræðum við danska sambandið. ,,Það tók Nikolaj Jacobsen nákvæmlega núll sekúndur að finna nýja hægri hönd sína. Mikkel Hansen hefur nýlega verið kynntur sem nýr aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins. Hann hefur skrifað undir „eilífðar samning“ og mun fyrst og fremst einbeita sér að því að kenna vængmönnum að snúa boltanum og öskra rétt á dómarana. Velkominn aftur, Mikkel," segir á Facebook-síðu Handballtransfer. Glöggir lesendur síðunnar átta sig hinsvegar á því að um apríl gabb er að ræða. Óvissan um það hver mun taka við sem aðstoðarþjálfari Nikolaj Jacobsen heldur því áfram.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.