Franska handboltastjarnan Pauletta Foppa hefur eignast sitt fyrsta barn. Foppa, sem er 25 ára gömul og leikur með Brest Bretagne, eignaðist dreng og tekur sér nú tímabundið hlé frá handboltanum. Foppa greindi sjálf frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum en í kjölfarið sendu bæði Brest Bretagne og franska handknattleikssambandið henni hamingjuóskir. Handboltinn fær því að víkja um stund hjá Foppa, sem þrátt fyrir ungan aldur hefur þegar unnið nánast allt sem hægt er að vinna á ferlinum. Foppa hefur orðið heimsmeistari, Evrópumeistari og Ólympíumeistari með franska landsliðinu. Þá hefur hún orðið franskur meistari með Brest og unnið silfur í Meistaradeild Evrópu auk þess að hafa nokkrum sinnum verið valin í úrvalslið stórmóta. Brest kemur inn í tímabilið eftir að hafa orðið franskur meistari og komist í Final4 í Meistaradeildinni á síðasta tímabili. Á meðan Foppa er fjarverandi hefur Brest þær Oriane Ondono og Sofia Hvenfelt til taks í línustöðunni. Foppa hefur vakið mikla athygli fyrir hraða sinn, líkamlegan styrk og tímasetningar í varnarleiknum. Hún er jafnframt öflug í hraðaupphlaupum og sóknarleik og hefur, þegar á hefur þurft að halda, einnig getað leyst stöðu skyttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.