Lætur sykursýki ekki stöðva sig
Jacob Schröter /AFP

Rasmus Ankermann er talinn eitt mesta handboltaefni Þýskalands og hefur þegar skrifað undir atvinnumannasamning við stórliðið THW Kiel. Hinn 19 ára gamli Ankermann glímir jafnframt við sykursýki en lætur sjúkdóminn ekki standa í vegi fyrir háleitum markmiðum sínum.

Ankermann hefur tekið stór skref á handboltaferlinum á undanförnum mánuðum. Hann varð heimsmeistari með U19 ára landsliði Þýskalands, skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Kiel og er farinn að vekja athygli.

Hann hefur verið opinskár um sykursýkina en leggur áherslu á að hún skilgreini hvorki hann né þær væntingar sem hann hefur til ferilsins. Ankermann hefur frá greiningunni haft eitt ráð frá sínum fyrsta lækni að leiðarljósi.

Ekki laga líf þitt að sykursýkinni. Lagaðu sykursýkina að lífi þínu,“ sagði Ankermann í samtali við Bock auf Handball.

Saga hans sýnir að langvinn veikindi þurfa ekki að koma í veg fyrir að íþróttafólk nái langt. Fleiri þekkt dæmi eru úr handboltaheiminum. Sænska landsliðskonan Jenny Carlson leikur með stóma, fyrrverandi danska úrvalsdeildarkonan Natascha Ohledorf er heyrnarlaus og Emil La Cour hefur leikið handbolta á háu stigi þrátt fyrir að vera með sáraristilbólgu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top