Sjúkraþjálfari liðsins fyrir 2 árum en markahæst í síðasta leik
J.L.Long

Hin 26 ára Eyjamær Eva Aðalsteinsdóttir var markahæst hjá FH í síðasta leik í Grill 66 deild kvenna og setti 7 mörk á móti HK 2.

Eva er hægt og rólega að koma sér aftur á fullt í boltann aftur eftir pásu. Þess má til gamans geta að hún er stóra systir Elísar Þórs Aðalsteinssonar hjá ÍBV.

Tímabilið 2024/2025 sinnti hún allt öðru hlutverki hjá liðinu en þá var hún sjúkraþjálfari liðsins. Á síðasta tímabili tók hún fram skóna þar sem hún spilaði 11 leiki á síðasta tímabili og setti 16 mörk.

Við heyrðum aðeins í Evu og fengum hana til að segja okkur aðeins frá hvernig lífið er í Krikanum og hvað kom til að hún tók fram skóna aftur.

"Ég hætti í handbolta árið 2020 þegar ég flutti úr Eyjum til að fara í Háskólann að læra sjúkraþjálfun. Ég fór ekki í neitt lið í bænum þar sem ég varð fljótlega ólétt af stráknum mínum. Svo byrjaði ég sem sjúkraþjálfari hjá FH stelpunum tímabilið 24/25. Ég tengdi vel strax við liðið og þær urðu fljótt vinkonur mínar"

"Ég byrjaði aðeins að æfa með þeim, kannski 1x í viku en svo tímabilið 25/26 spurðu þjálfararnir hvort ég vildi ekki byrja að æfa með þeim meira og ég var mjög til í það. Svo þróaðist þetta bara og það gekk vel á æfingum, miðjumaðurinn okkar meiddist og þá var ég allt í einu mætt í byrjunarliðið og skrifaði undir samning"

"Held að ég hefði ekki tekið skóna af hillunni hvar sem er en stelpurnar og þjálfararnir eru mjög hvetjandi. Krikinn er gott umhverfi. Strákurinn minn 4 ára kemur með mér á allar æfingar og hann elskar það. Hann er farinn að þekkja alla í Krikanum" sagði Eyjamærin Eva Aðalsteinsdóttir að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top