Færeyjar vilja halda Evrópumót kvenna
Færeyska handknattleikssambandið

Færeyingar hafa lýst yfir áhuga á að halda Evrópumót kvenna í handbolta árið 2034. Evrópska handknattleikssambandið, EHF, greindi frá þessu fyrir helgi.

Færeyjar eru eitt fimm handknattleikssambanda sem hafa tilkynnt EHF um áhuga á að halda mótið. Hin löndin eru Danmörk, Lúxemborg, Holland og Svíþjóð.

Það yrði sögulegur viðburður fyrir færeyskan handbolta yrði umsóknin samþykkt, en Færeyjar hafa aldrei áður haldið Evrópumót fullorðinna, hvorki í karla- né kvennaflokki. Sama á við um Lúxemborg. Mikil uppsveifla hefur verið í færeyskum handbolta undanfarin ár og landslið þjóðarinnar hafa vakið sífellt meiri athygli á alþjóðlegum vettvangi.

Evrópumót kvenna árið 2034 á að fara fram dagana 28. nóvember til 17. desember. Samböndin sem hafa lýst yfir áhuga hafa frest til 1. mars 2027 til að skila inn formlegum umsóknum. Endanleg ákvörðun um gestgjafa verður tekin á þingi EHF í Ljubljana í Slóveníu 18. september 2027.

Einnig liggur fyrir að breyting verður gerð á fyrirkomulagi Evrópumótsins árið 2034 og verða átta liða úrslit þá hluti af keppnisfyrirkomulaginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top