
Dregið verður í 16-liða úrslit Powerade-bikars karla og kvenna næstkomandi fimmtudag. Drátturinn fer fram í Minigarðinum, hefst klukkan 12:15 og verður sýndur í beinni útsendingu. Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar í karlaflokki og Valur hjá konunum. Leikirnir í 16-liða úrslitum karla fara fram 8. og 9. október og leikirnir í 16-liða úrslitum kvenna fara fram 18. nóvember. Eftirtalin lið verða í pottinum í karlaflokki: Afturelding, FH, Fram, Grótta, Haukar, HK, Hvíti Riddarinn, ÍBV, ÍBV 2, KA, Selfoss, Stjarnan, Valur, Víkingur og Þór. Þá bætist sigurvegarinn úr leik Fjölnis og ÍR í hópinn en liðin mætast í 32-liða úrslitum bikarsins í kvöld. Eftirtalin lið verða í pottinum í kvennaflokki: Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta, HK, ÍBV, ÍR, KA/Þór, Selfoss, Stjarnan og Víkingur. Íslands- og bikarmeistarar Vals sitja hjá í umferðinni ásamt Haukum, sem taka þátt í Evrópukeppni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.