Holstebro með sigur í Íslendingaslag
(Egill Bjarni Friðjónsson)

Tveir leikir fóru fram í danska bikarnum í kvöld en annar þeirra var Íslendingaslagur milli Ringsted og TTH Holstebro. Ringsted endurheimtu Ísak Gústafsson en hann sneri aftur í leikmannahóp liðsins eftir meiðsli og það var allt annað að sjá til liðsins en í fyrstu leikjum liðsins í deildinni.

Gestirnir í Holstebro voru öflugri í fyrri hálfleik og leiddu með fjórum mörkum, 12-16. Heimamenn gáfust þó ekki upp og sýndu seiglu sína í seinni hálfleiknum og jöfnuðu leikinn undir lok leiksins og tryggðu sér framlengingu, 32-32 eftir venjulegan leiktíma.

Gestirnir voru skrefinu á undan í framlengingunni og höfðu að lokum betur, 37-38. Ísak skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir heimamenn en í liði gestanna átti Jóhannes Berg Andrason frábæran leik en hann skoraði átta mörk úr tíu skotum og gaf þrjár stoðsendingar. Holstebro er því komið áfram í átta liða úrslit.

Rétt eins og Sønderjyske sem sigraði GOG óvænt á heimavelli sínum í kvöld, 38-33.

Úrslit kvöldsins:

Ringsted 37-38 TTH Holstebro

Sønderjyske 38-33 GOG

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top