

HSÍ hefur tilkynnt að uppselt er á kvenna landsleik Íslands og Portúgals sem fram fer á Ásvöllum á sunnudaginn, 12.apríl. Um er að ræða lokaleik Íslands í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer síðar á árinu. Í millitíðinni mætir íslenska landsliðið því færeyska í Færeyjum á miðvikudaginn klukkan 20:00 en leikurinn á sunnudaginn hefst klukkan 16:00. Samherji, eða Besti bitinn býður frítt á leikinn á sunnudaginn en sækja þurfti miða á Stubb.is til að tryggja sér miða á leikinn. Nú er ljóst að ekki verður hægt að sækja sér fleiri miða á leikinn á sunnudaginn. Frábært framtak hjá Besta bitanum og frábært fyrir íslenska kvenna landsliðið að fá mikinn stuðning í lokaleiknum í riðlinum en mikið er undir í síðustu tveimur leikjunum. Ísland er á botni riðilsins með tvö stig en Færeyjar og Portúgal er með fjögur stig. Svartfjallaland er á toppi riðilsins með sex stig en einu stig Íslands í riðlinum komu gegn Svartfjallalandi. Ljóst er að Ísland þarf í það minnsta að vinna einn af síðustu tveimur leikjunum til að eiga möguleika á sæti á Evrópumótinu sjálfu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.