Þetta eru vonbrigði – Ýmislegt sem við þurfum að skoða
Ina FASSBENDER / AFP

Eftir fínan fyrri hálfleik fór allt í baklás hjá íslenska landsliðinu gegn því færeyska í Þórshöfn í kvöld þegar liðin mættust í næst síðustu umferð undankeppni Evrópumótsins. Lokatölur 35-30 og annað tap Íslands gegn Færeyjum í undankeppni Evrópumótsins staðreynd.

Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins var í viðtali við RÚV eftir leik þar sem hann var spurður út í leikinn og framhaldið.

,,Þetta eru vonbrigði það er engin sprurning. Það er margt sem fer í gegnum hugann eftir þetta. Við vorum „soft“ varnarlega og náðum aldrei þeirri tengingu eða takti þar sem við vorum búin að leggja upp með. Þær unnu okkur einfaldlega bara of auðveldlega kona á konu. Það sem við vorum búin að plana í framhaldi af því gekk ekki upp. Við fáum alltof mikið af mörkum á okkur og þetta verður erfitt. Það fjarar hratt undan öllu öðru líka. Það er ýmislegt sem við þurfum að skoða,“ sagði hann en hann var næst spurður að því hvað hann hefði viljað sjá liðið gera betur í leiknum.

,,Ég hefði viljað að við hefðum staðið varnarleikinn þéttar og náð að fjölga þessum sendingum hjá þeim sem við ætluðum okkur en það gekk ekki upp. Síðan fannst mér við ekki ná nægilega góðu floti sóknarlega heldur. Við erum of mikið að stinga niður og leita til baka. Við gerðum þetta alltof erfitt."

Íslenska landsliðið er með bakið upp við vegg og þarf að treysta á að Svartfjallaland vinni Portúgal annað kvöld og þá þarf liðið að vinna Portúgal í lokaumferðinni á sunnudaginn en sá leikur fer fram á Ásvöllum.

,,Það verður hörkuleikur og við þurfum eins og alltaf að læra af því sem við erum að gera. Það er enginn skömm af því að tapa fyrir þessu færeyska liði. Þetta er hörku lið með marga frábæra leikmenn í frábærri þjóðarhöll hérna sem er vel mætt í. Auðvitað er fullt af hlutum sem við viljum gera betur og við þurfum að laga. Við þurfum að gera betur á sunnudaginn og eiga alvöru leik þar á heimavelli,“ bætti Arnar við RÚV.

Ísland er á botni riðilsins með tvö stig eftir fimm leiki en Portúgal er í 3.sæti með fjögur stig eftir fjóra leiki. Færeyjar er með sex stig sem og Svartfjallaland.

ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ MEÐ BAKIÐ UPP VIÐ VEGG EFTIR TAP Í FÆREYJUM

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top