Þakklátur fyrir tímann hjá Fjölni
HK handbolti

Hægri hornamaðurinn Alex Máni Oddnýjarson gekk í raðir HK nú á dögunum frá Fjölni þar sem hann er uppalinn. Alex Máni er 22 ára og skoraði hann 57 mörk í 19 leikjum fyrir uppeldisfélagið sitt í Grill 66 deildinni í vetur.

Við heyrðum aðeins í Alex Mána og spurðum hann hvað kæmi til að hann færi frá uppeldisfélaginu og í HK.

"HK heyrði í mér fyrst í janúar og ég tók mér smá umhugsun en við kláruðum þetta síðan í lok febrúar. Það er erfitt að kveðja uppeldisfélagið en ég er mjög þakklátur fyrir tímann minn hjá Fjölni. Ég er hinsvegar mjög spenntur fyrir þessum skiptum og að spila aftur í Olís deildinni og halda áfram að bæta mig sem leikmann og hlakka til að spila undir stjórn Halldórs"

HK endaði í 8. sæti Olís deildarinnar í vetur með 16 stig í 22 leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top