Hápunktar úr leikjum gærdagsins í Meistaradeildinni
Kristianstad

Fimm leikir fóru fram í 3. umferð Meistaradeildar Evrópu í handbolta karla í gærkvöldi þar sem íslenskir leikmenn voru heldur betur í sviðsljósinu.

Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon fóru á kostum í 35-30 útisigri Magdeburg gegn Kielce í Póllandi en þeir skoruðu ellefu mörk hvor fyrir þýska liðið. Magdeburg hefur þar með unnið alla þrjá leiki sína í keppninni.

Einar Bragi Aðalsteinsson átti sömuleiðis stórleik fyrir Kristianstad og skoraði tíu mörk í 37-32 tapi gegn danska liðinu GOG.

Þá skoraði Bjarki Már Elísson sjö mörk fyrir París Saint-Germain sem vann stórsigur á Celje, 46-35. Parísarliðið setti jafnframt félagsmet í fjölda marka í einum leik í Meistaradeildinni.

Auk þess vann Veszprém öruggan útisigur á Partizan, 37-26, og Kriens-Luzern vann sinn fyrsta sigur í sögu Meistaradeildarinnar þegar liðið lagði Kolstad, 34-32.

Hér að neðan má sjá hápunkta úr öllum fimm leikjum gærdagsins í Meistaradeildinni.

Kielce - Magdeburg 30-35

Kristianstad - GOG 32-37

PSG - Celje 46-25

Partizan - Veszprém 26-37

Kriens-Luzern - Kolstad 34-32

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top