Kvennalandsliðið hefur leik gegn Slóveníu
MARIJAN MURAT / dpa Picture-Alliance via AFP

Íslenska kvennalandsliðið hefur leik á Evrópumótinu 3. desember og mætir þá Slóveníu í fyrsta leik riðlakeppninnar. Ísland leikur í A-riðli sem fer fram í Oradea í vesturhluta Rúmeníu, skammt frá landamærum Ungverjalands.

Í riðlinum eru einnig Ungverjar, sem unnu til bronsverðlauna á síðasta EM, og Svartfellingar, sem Ísland mætti í undankeppninni sem lauk nýverið. Samkvæmt bráðabirgðadagskrá verður leikjaröð Íslands þannig að liðið mætir Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember.

Miðasala á mótið er þegar hafin og búast má við miklum áhuga, ekki síst vegna þátttöku Ungverja í riðlinum en stutt er að fara frá Ungverjalandi yfir til Oradea.

Dregið var í riðla í Katowice í Póllandi á fimmtudaginn og var Ísland í neðsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn. Þrátt fyrir það bíður liðsins spennandi verkefni, en þetta verður fjórða stórmótið í röð sem íslenska liðið tekur þátt í.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top