Í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans í gærkvöldi var rætt um viðskilnað Grétars Áka Andersen þjálfara kvennaliðs ÍR sem var á einhvern ótrúlegan hátt rekinn með liðið eftir bestan árangur kvennaliðs ÍR frá upphafi. Hvorki Björgvin Þór Hólmgeirsson framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍR né Kristinn Jóhannsson formaður handknattleiksdeildar ÍR hafa viljað tjá sig við fjölmiðla. Enginn virðist vita afhverju Grétar Áki hafi verið rekinn en í fyrstu yfirlýsingu ÍR var sagt frá því að Grétar Áki hafi beðið um að hætta. ÍR talaði reyndar af sér í næstu tilkynningu. VILDU LANDSLIÐSSTELPURNAR GRÉTAR ÁKA BURT? ,,ÍR ber það af sér að það hafi verið landsliðsstelpur innan ÍR sem hafi haft mikið um það að segja að Grétar Áki hafi hætt með liðið. Þetta er aldrei gott," sagði Hörður Magnússon áður en Vignir Stefánsson tók til máls. STJÓRN ÍR MARGSAGA UM ÁSTÆÐUR BROTTHVARFS GRÉTARS ÁKA ,,Þetta lítur ekki nægilega vel út. Fyrstu fréttirnar að Grétar Áki sé hættur með ÍR eru vonbrigði fyrir mig. Að hafa fylgst með ÍR liðinu í vetur, þá var liðið við toppinn um áramótin, með markahæsta leikmann deildarinnar og komnar með þrjár stelpur í landsliðið. Fyrir mér voru þær jafnvel líklegastar á þeim tímapunkti. Síðan fatast þeim flugið og allt í góðu með það. Það eitt og sér að hann hafi hætt eru vonbrigði en hvernig fréttaflutningurinn er í kjölfarið er enn meiri vonbrigði. Maður vill alltaf hafa þetta eins hreinan viðskilnað, hvernig sem hann er hvort maðurinn sé rekinn eða hvort hann hafi viljað hætta, þá á það bara að vera upp á borðinu. Ef leikmenn vilja hann ekki, þá er það bara þannig. Það mun aldrei ganga ef leikmennirnir vilja ekki hafa þjálfarann í liðinu þá hefði það aldrei gengið inn í næsta tímabil og þá er eins gott að segja þessu lokið. Það að það hafi verið einhverjar óútfylltar eyður í þessu er aldrei gott," sagði Vignir Stefánsson. VEGNA YFIRLÝSINGAR ÍR UM UMFJÖLLUN HANDKASTSINS Frekari umræða í Handboltahöllinni um þetta mál má sjá hér að neðan þar sem Rakel Dögg Bragadóttir tjáir sig einnig um málið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.