Yfirlýsing Handkastsins: Handkastið vill bregðast við yfirlýsingu handknattleiksdeildar ÍR sem birt var í gær vegna umfjöllunar okkar um starfslok Grétars Áka Andersen. Handkastið stendur við þá umfjöllun sem birtist í þætti okkar 22. apríl og á heimasíðu miðilsins þangað til annað kemur í ljós en harmar að einstaka leikmenn hafi verið nafngreindir og dregist inn í umræðuna. Fréttaflutningur Handkastsins er byggður á heimildum og þeirri vinnu sem lögð hefur verið í málið. VILDU LANDSLIÐSSTELPURNAR GRÉTAR ÁKA BURT? Eftir umfjöllun Handkastsins 22.apríl var Söru Dögg Hjaltadóttur boðið að tjá sig um málið eftir að hún hafi sent ritstjóra Handkastsins skilaboð þar sem hún sakaði Handkastið um að búa til frétt á óstaðfestum sögusögnum. Sara Dögg hefur ekki svarað beiðni Handkastsins um að hún tjái sig um málið. Kristinn Jóhannsson, formaður handknattleiksdeildar ÍR, hefur ekki svarað ítrekuðum símtölum Handkastsins í dag eftir að hafa sent frá sér tilkynningu um málið og sagt að umfjöllun Handkastins hafi verið óvönduð, ómálaefnaleg og Handkastinu ekki til framdráttar. Þá vildi framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍR, Björgvin Þór Hólmgeirsson, ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í dag. Það ýtir ekki undir trúverðugleika stjórnar ÍR að hvorki formaður handknattleiksdeildar svari ítrekuðum símtölum Handkastsins og að framkvæmdarstjóri deildarinnar vilji ekki tjá sig um málið. Í tilkynningunni sem stjórn ÍR sendi frá sér í gær og Kristinn Jóhannsson formaður handknattleiksdeildar ÍR ritar undir, virðist sem formaðurinn staðfesti þá frásögn Handkastsins að Grétar hafi verið látinn fara en í fyrstu var því haldið fram að Grétar Áki hafi óskað eftir að láta af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna. Handkastið lítur alvarlegum augum á þá afstöðu stjórnar ÍR að umfjöllun miðilsins hafi verið óvönduð, ómálefnaleg og Handkastinu ekki til framdráttar. Handkastið hafnar þessari gagnrýni og telur sig hafa unnið fréttina á faglegan hátt, byggða á traustum heimildum og staðreyndum málsins. Miðillinn stendur við umfjöllun sína og telur hana falla innan eðlilegra marka fjölmiðlunar og almennrar umræðu. Handkastið leggur áherslu á mikilvægi opinnar og málefnalegrar umræðu um handboltann og mun áfram sinna hlutverki sínu af ábyrgð og heilindum. Handkastið leggur ríka áherslu á vandaðan fréttaflutning og mun áfram fjalla um málið af ábyrgð og fagmennsku. Sannleikurinn kemur alltaf í ljós á endanum. — Handkastið

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.