Vildu landsliðsstelpurnar Grétar Áka burt?
Sævar Jónasson

Handkastið greindi frá því fyrst allra fjölmiðla á dögunum að Grétar Áki Andersen væri hættur með kvennalið ÍR eftir eitt ár í starfi sem aðalþjálfari liðsins. Grétar Áki kom inn í þjálfarateymi kvennaliðs ÍR fyrir síðasta tímabil þegar hann var aðstoðarþjálfari Sólveigu Láru en tók alfarið við liðinu síðasta sumar þegar Sólveig Lára hætti sem þjálfari ÍR.

Daginn eftir að Handkastið hafi sagt frá því að Grétar Áki væri hættur með kvennaliðið sendi ÍR frá sér tilkynningu á samfélagsmiðla síðu sinni þar sem félagið staðfestir að Grétar Áki hafi óskað eftir því að láta af störfum sem þjálfari ÍR.

Atburðarrás sem hófst í febrúar

,,Grétar kom öflugur inn í félagið með mikinn drifkraft og metnað. Samhliða meistaraflokki þjálfaði hann öflugan hóp 3.fl kvk. Stjórn handknattleiksdeildar þakkar Grétari fyrir góð störf hjá félaginu og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni," segir í tilkynningunni frá ÍR.

Eftir því sem Handkastið best veit er Grétar Áki ekki kominn með annað þjálfarastarf og var farinn að undirbúa næsta tímabil með kvennalið ÍR og var meðal annars búinn að sækja leikmenn til liðsins sem átti eftir að tilkynna.

Rætt var um þetta mál í uppgjörsþætti Handkastsins þar sem Stymmi klippari fór yfir þá sögu sem hann hefur heyrt varðandi þetta mál frá fleiri en einum og fleiri en tveimur. Hafa skal það í huga að alltaf eru tvær hliðar og jafnvel fleiri á öllum málum. Handkastið telur sig hinsvegar hafa það góðar heimildir fyrir því að þessi orðrómur eigi við rök að styðjast.

,,Það vill svo skemmtilega til að það kom maður til mín í handboltahreyfingunni í klippingu í morgun og við vorum að ræða þetta og þar segir hann mér að samkvæmt hans heimildum í þessu máli þá hafi tvær stelpur farið fram í þessu máli og viljað Grétar Áka burt sökum þess að þeim fannst hann ekki nægilega stórt nafn til að laða að sér stærri leikmenn í ÍR. Þetta á að hafa byrjað einhverntímann í febrúar þar sem þær fara með þetta í stjórnina og síðan grasserast þetta mál hægt og rólega. Stjórnin tekur þetta greinilega ekki föstum tökum og þetta kemur upp á svipuðum tíma að Katrín Tinna sé að fara út í atvinnumennsku þá fara þær aftur á fund og fara hafa áhyggjur af því að það séu ekki að koma sterkir leikmenn í ÍR-liðið og telja að Grétar Áki sé ástæðan fyrir því,” sagði Stymmi klippari og nafngreindi í leiðinni þá leikmenn sem umræðir, þær Söru Dögg Hjaltadóttur og Matthildi Lilju Jónsdóttur leikmenn ÍR og íslenska kvennalandsliðsins.

,,Enda hefur ÍR verið þekkt fyrir það að sanka að sér frábærum leikmönnum til sín undanfarin ár,” bætti Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi við, í kaldhæðnistón.

Ekki láta cancella þér

,,Síðasta sem konan sagði við mig áður en ég fór hingað í upptökur í kvöld var: Ekki láta cancella þér í kvöld. Ef satt reynist, ég hef einhverntímann hlaupið á mig, ef ég hefði heyrt í stjórn ÍR þá hefðu þau aldrei svarað mér. Það er enginn að fara segja að þetta sé rétt, en það að ég hafi heyrt þetta frá nokkrum mismunandi áttum segir mér að þetta eigi einhverjar stoðir í raunveruleikanum. Að þessar tvær landsliðsstelpur séu að bola honum út og þetta er orðið alltof algengt, sérstaklega kvennamegin. Við erum með gamlar sögur af Sigga Ragga með kvennalandsliðið, Árni Stefán í Haukum var bolað út, útaf einhverjir leikmenn voru ósáttir við hann. Þetta er orðið svo óþolandi, það er ekkert Grétars Áka að vera eitthvað aðdráttarafl fyrir aðra leikmenn að koma í ÍR. Það er frekar að Matthildur Lilja, Sara og fleiri sem þurfa að standa sig ennþá betur og ná betri árangri svo það sé gott að koma í ÍR. Ég hef aldrei vitað til þess að þjálfarar í kvennaboltanum sé eitthvað aðdráttarafl. Ég held að það sé meira aðdráttarafl að eiga góða vinkonu í liðinu," bætti Stymmi klippari við áður en hann hélt áfram:

,,Grétar Áki hefur gert frábæra hluti með þetta ÍR lið þrátt fyrir að þetta hafi dalað eftir áramót. Sara Dögg hefur skorað 100% fleiri mörk eftir að hann tók við liðinu þar sem hann hefur sett leikinn þannig upp að það hentar henni. Hún fer úr rúmlega 5 mörkum að meðaltali í leik í rúmlega 9 mörk að meðaltali í ár. Matthildur Lilja er komin í landsliðið, það eru þrjár landsliðsstelpur í ÍR og mér finnst það ekki vera hlutverk Grétars Áka að laða einhverja leikmenn, það er frekar umhverfið hjá ÍR, stjórnin, leikmennirnir og seðlar líka."

Ítarlega var rætt um þetta mál í uppgjörsþætti Handkastsins þar sem Kristinn Björgúlfsson, ÍR-ingur og gestur þáttarins sagði sína skoðun á þessu máli.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top