
Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson hafa tilkynnt lokahóp U16 ára landsliðs kvenna sem mun keppa á Opna Evrópumótinu í Gautaborg dagana 29. júní til 3. júlí. Ísland sem er eitt af 20 liðum sem taka þátt í mótinu er í riðli með Ungverjalandi, Króatíu, Tékklandi og Litáen. Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sér sæti í átta liða úrslitum, en hin liðin spila um sæti níu til tuttugu. Þá fá tvö efstu lið mótsins þátttökurétt á nýju heimsmeistaramóti U16, sem haldið verður síðar á árinu í fyrsta sinn. Alls skipa 16 leikmenn landsliðshópinn, auk fjögurra varamanna. Landsliðshópurinn: Varamenn:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.