
Signý Harðardóttir hefur framlengt samningi sínum við Fjölni. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag. Signý er fædd árið 2007 og hefur leikið með meistaraflokksliði Fjölnis í Grill66-deildinni undanfarin ár. ,,Signý er ungur og efnilegur vinstri hornamaður sem hefur vakið athygli fyrir styrk sinn, snörp tilþrif og mikla vinnusemi. Hún er baráttuglöð á vellinum og leggur sig alltaf fram fyrir liðið, bæði í vörn og sókn. Fjölnir bindur miklar vonir við áframhaldandi þróun Signýjar á komandi tímabilum," segir í tilkynningunni frá Fjölni. Signý sjálf er spennt fyrir framhaldinu: „Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að leggja mig fram um að gera betur í dag en í gær. Það er kraftur í hópnum og ég trúi því að við eigum eftir að gera góða hluti saman.“ Signý er annar leikmaðurinn sem framlengir við Fjölni á stuttum tíma en Sara Kristín Pedersen framlengdi samningi sínum við félagið á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.