Ísland verður í efsta styrkleikaflokki á HM 2027
Johan Nilsson/TT /AFP

Ísland verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi 2027 en dregið verður í riðla í München 10.júní.

Það liggur fyrir hvaða 30 þjóðir hafa tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Enn eru tvö laus sæti á mótið og verða þau úthlutuð af framkvæmdastjórn Alþjóða handknattleikssambandsins.

Framkvæmdastjórn IHF mun tilkynna hvaða tvær þjóðir komast inn á mótið sem svokallað "Wild-card" nokkrum dögum áður en dregið verður í riðlanna.

Hér að neðan er hægt að sjá hvernig þjóðirnar skiptast niður í styrkleikaflokkana fjóra.

Styrkleiki 1:
Danmörk (G-riðill)
Þýskaland (A-riðill)
Króatía (C-riðill)
Ísland (H-riðill)
Portúgal (F-riðill)
Svíþjóð (E-riðill)
Egyptaland
Argentína

Styrkleiki 2:
Frakkland
Slóvenía
Noregur
Serbía
Spánn
Ítalía
Færeyjar
Norður-Makedónía

Styrkleiki 3:
Grikkland
Pólland
Brasilía
Bahrain
Túnis
Grænhöfðaeyjar
Síle
Bandaríkin

Styrkleiki 4:
Katar
Kúwait
Japan
Alsír
Angóla
Úrúgvæ
Wildcard 1
Wildcard 2

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top